23.03.1956
Neðri deild: 92. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Skúli Guðmundsson:

Ég sé, að í þessari till. til rökstuddrar dagskrár er minnzt á skipaútgerð ríkisins og ferðaskrifstofu ríkisins, en hins vegar held ég, að það sé áreiðanlegt, að þessar stofnanir séu alls ekki nefndar í frv., sem hér liggur fyrir, og virðist mér því dagskráin að nokkru leyti út í hött, og ég sé ekki, að með atkvgr. um þetta frv. sé verið að taka neina afstöðu til þeirra stofnana. Með þessari athugasemd segi ég nei.