23.03.1956
Neðri deild: 92. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)

105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Einar Olgeirsson:

Það virðist svo sem hv. þm. Framsfl. hafi ekki fylgzt rétt vel með í þeim umr., sem fram hafa farið um þetta mál, og þeim sé þess vegna ekki ljóst, að hér er verið að greiða atkv. nm stefnu. Enginn þeirra hefur mótmælt því, að það væri algert samræmi á milli þeirra þriggja stofnana og þeirra örlaga, sem þarna er um að ræða. Þess vegna er þessi dagskrá góðum rökum studd, og þess vegna segi ég já við henni.