26.03.1956
Neðri deild: 96. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1382)

26. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 487, er komið frá hv. Ed. Sjútvn. þessarar hv. d. hefur haft það til athugunar og leggur til, að það verði samþykkt.