12.10.1955
Efri deild: 3. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í C-deild Alþingistíðinda. (1427)

10. mál, stýrimannaskólinn í Reykjavík

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég get látið nægja að vísa til þess, sem ég sagði um næsta mál á undan, óg hygg með öllu óþarft að endurtaka þær röksemdir, sem þar voru fluttar. Þær eiga í einu og öllu við um stýrimannaskólann á sama veg og um matsveina- og veitingaþjónaskólann.

Ég vildi leggja til, að frv. yrði vísað til hv. menntmn. og 2. umr.