15.12.1955
Neðri deild: 35. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (165)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þar sem ég flyt á þskj. 213 brtt., sem veitir starfsmönnum ríkisins rétt til þess að berjast eins og frjálsir menn fyrir sínum launum, en er hins vegar í mótsetningu við þessa, segi ég nei.