14.11.1955
Efri deild: 17. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (1686)

97. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús

Forseti (GíslJ):

Út af till. hæstv. ráðh. um nefndina skal ég upplýsa, að þann 19. okt. var frv. til l. um breyt. á sömu lögum, þ.e. 45. mál, á þskj. 50, vísað til fjhn., svo að mér þykir eðlilegt, að málið fari í fjhn., og vildi þá beina því til hv. formanns n., að eðlilegast væri að sameina þessi tvö frv., vegna þess að þau eru breytingar á einum og sömu lögum.