13.01.1956
Efri deild: 38. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (1692)
97. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Þessari umr. var frestað 22. nóv. s.l. samkvæmt beiðni minni sem formanns fjhn. Ástæðan til þeirrar beiðni var sú, að frá því að 2. umr. um málið var háð höfðu nefndinni borizt ýmis erindi viðvíkjandi málinu, sem ég vildi fá tækifæri til þess að kynna meðnefndarmönnum mínum.
Aðallega voru það erindi frá þjóðleikhússtjóra, fræðslumálastjóra og íþróttafulltrúa, en þar á eftir barst fjöldi erinda, fyrst og fremst frá Bandalagi ísl. leikfélaga og svo frá einstökum leikfélögum, öll um sama efni, sem sé beiðni um það, að skemmtanaskattur af leiksýningum yrði afnuminn, ekki einasta í þjóðleikhúsinu, heldur öllum leiksýningum, og svo var náungans kærleikur mikill og stuðningur við leiklistina, að fjöldi smáleikfélaga, sem engan skemmtanaskatt greiða af sínum leiksýningum, vegna þess að þau eru á stöðum, sem skemmtanaskattur tekur ekki til, sendi líka áskoranir um þetta.
Nefndin hefur athugað þessi erindi og getur játað, að það væri æskilegt, að leiksýningar, sem yfirleitt eru menningarstarfsemi, væru undanþegnar skemmtanaskatti. En nefndin treysti sér þó alls ekki til að gera till. um að skerða tekjur þeirra stofnana, sem skemmtanaskattsins eiga að njóta, sem sé þjóðleikhússins og félagsheimilanna, og þar af leiðandi er afstaða nefndarinnar óbreytt þrátt fyrir þessi erindi, sem var sú og er enn, að frv. verði samþykkt óbreytt.