26.03.1956
Neðri deild: 95. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (1759)

191. mál, jafnvægi í byggð landsins

Forseti (SB):

Ég vil vekja athygli hv. þm. á því, að venjulegur fundartími er að verða liðinn. Hins vegar var ætlunin að reyna að ljúka 1. umr. um þetta mál, þannig að því yrði komið til nefndar. Ég vænti, að þeir hv. þm., sem taka til máls hér eftir, stilli ræðulengd sinni svo í hóf, að unnt verði að koma málinu til n. nú á þessum fundi.