27.03.1956
Neðri deild: 98. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í C-deild Alþingistíðinda. (1765)

191. mál, jafnvægi í byggð landsins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) tók fram, hefur ekki unnizt tími til að halda fund i fjhn. í dag, vegna þess að fundir hafa verið tíðir og staðið lengi, bæði í Sþ. og deildinni, en hins vegar er ákveðinn fundur í fjhn. í fyrramálið, og mun þá þetta mál verða tekið fyrir. Vil ég fara fram á, að umr. verði frestað, þar til n. hefur haft tækifæri til að athuga málið og skila áliti.