28.03.1956
Neðri deild: 99. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í C-deild Alþingistíðinda. (1778)

191. mál, jafnvægi í byggð landsins

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hér liggja fyrir margar brtt. við þetta frv. Það er vitað, að þinglausnir verða í dag og það eftir skamman tíma. Það er vitað, að ef brtt. verða samþ. við þetta frv., er það sama og að koma málinu fyrir kattarnef. Ég mun þess vegna greiða atkv. á móti sérhverri brtt. fram borinni, án hliðsjónar af því, hvort það mál, sem þar er um að ræða, er út af fyrir sig þess virði að vera samþykkt eða ekki. Ég segi þess vegna nei við þessari brtt. og öllum öðrum brtt. við frv. frá þessu sjónarmiði.