28.03.1956
Neðri deild: 99. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 402 í C-deild Alþingistíðinda. (1785)
191. mál, jafnvægi í byggð landsins
Einar Olgeirsson:
Um leið og ég vil lýsa ánægju minni yfir þeim breytingum, sem fram hafa komizt á frv. nú, þá vil ég leyfa mér að ætla, að stuðningur Framsfl. við þessar brtt. hafi verið gerður í því skyni, að hægt sé að koma frv. í gegn á Alþingi, og sá einlægi stuðningur, sem hæstv. forsrh. lýsti yfir að Sjálfstfl. vildi veita þessu frv., þessi samanlagði stuðningur beggja fyrrverandi stjórnarflokka komi nú fram í því, að þingi verði haldið áfram, þangað til þessu frv. er lokið. Það er enginn, sem bindur okkur til þess að slíta þingi fyrr en búið er að samþykkja þetta frv., og um leið og ég skora á hæstv. ríkisstj. að sjá um, að svo verði gert, segi ég já við þessu.