16.12.1955
Efri deild: 32. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (190)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Haraldur Guðmundsson:

Ég skil það, að hæstv. ráðh. getur ekki gefið upplýsingar um þetta efni án þess að ráðgast við ráðh. pósts og síma. En í trausti þess, að einnig kjör þessara tveggja starfsmannahópa, sem ég nefndi hér áðan, verði athuguð, samtímis því sem kjör póstafgreiðslumanna verða athuguð, tek ég aftur 1. brtt. með undirliðum, aftur að 2. till.