28.10.1955
Efri deild: 12. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 696 í C-deild Alþingistíðinda. (2043)
72. mál, skipun prestakalla
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Ég á nú náttúrlega ekki að svara fyrir hv. nefnd. Mér skildist, að hv. 1. þm. N-M. væri að beina einhverju til hennar í þessu sambandi.
Ég skal láta eins og vind um eyrun þjóta þann skæting, sem hv. þm. var með til minna kjósenda í Vestmannaeyjum eða Vestmanneyinga yfirleitt um andlega vanheilsu. Hitt er vitað, að eyjarnar eru svo í sveit settar sem a. m. k. fá prestaköll hér á landi mega við jafnast, og það er ekkert atriði í þessu máli, hvort einhver prestur er búinn að sitja lengur eða skemur, það væri jafnmikil þörf á því að hafa tvo þjónandi presta í Vestmannaeyjum, þó að það væri þar alveg nýr og ungur sóknarprestur, nýskipaður, sem raunar er nú ekki. Ég held, að það sé mjög almennur vilji fólksins austur þar að njóta aðstoðar tveggja presta, sem geti bæði unnið saman og vinni saman eins og verið hefur.
Það er rétt að minna á það í þessu sambandi, að núna um skeið hefur verið þarna prestvígður maður, séra Jóhann Hlíðar, sem hefur ásamt með sóknarprestinum starfað að málefnum kirkjunnar, málefnum uppfræðslu og öðru því, sem prestum ber að hafa með höndum. En það ástand, sem ríkir, það bráðabirgðaástand með þann sérstaka mann, getur ekki haldizt óbreytt, og kirkjumálaráðherra óskar gjarnan breytingar á því, en féllst á eftir þann drátt, sem á málinu varð á síðasta þingi, að leyfa honum að þjóna þar jafnframt sóknarprestinum, þangað til hið háa Alþingi hefði tekið ákvörðun í þessu máli, sem væntanlega yrði þá á þessu þingi.
Ég vil vona, að það sé litið sanngjörnum augum á réttmæti óska Vestmanneyinga í þessu efni. Það lágu hér fyrir þinginu síðast og eru til enn undirskriftir margra hundraða manna, sem óskuðu, að tveir þjóðkirkjuprestar störfuðu þarna á staðnum, og ég ber það traust til þessarar hv. deildar, að hún meti í fyrsta lagi þær samgönguástæður, sem hljóta að vera sterk rök í þessu máli, og í öðru lagi og ekki síður eindreginn vilja fólksins, sem byggir eyjarnar, til þess að koma þessu skipulagi á, sem nú lýsti ég og viðurkennt er af héraðsfundi í því prófastsdæmi, sem nú er nýbúið að skipa eyjunum í.
Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta mál, en vil vona, að það fái afgreiðslu, sem bæði ég og þeir, sem að baki mér standa og eru mínir kjósendur, getum við unað og er í anda þess hluta af prestastéttinni á landinu, sem á opinberum fundi hefur látið uppi um það sitt álit.