17.12.1955
Sameinað þing: 26. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í D-deild Alþingistíðinda. (2135)
124. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég álít óþarfa að fresta þinginu með þeim hætti, sem lagt er til með þessari þáltill. Ég álít, að það hefði verið nægilegt að fresta þinginu á þann hátt, sem gert hefur verið undanfarin ár, að fresta aðeins fundunum án þess að semja þar um sérstaka þáltill. Með þessari þáltill. fær ríkisstj. heimild til þess að gefa út brbl., og ég álít ekki heppilegt, að ríkisstj. gefi út brbl. um þá hluti, sem við allir vitum að eru hennar aðalviðfangsefni nú í þessu jólafríi, eins og hæstv. forsrh. var að lýsa. Og ég vil eindregið mega vonast til þess, þó að ég viti, að það tjái ekki í móti þessari till. að mæla, hún muni verða samþ., að hæstv. ríkisstj., ef hún kemst að ákveðinni niðurstöðu í þessu jólafríi um lausn á þeim aðkallandi vandamálum, kalli heldur þing saman fyrr en 5. janúar og gefi þinginu tækifæri til þess að fjalla um þá lausn en að láta það standa frammi fyrir orðnum hlut, þegar það kæmi saman aftur. Það hefur engan veginn reynzt vel að leysa málin þannig með brbl. Hins vegar býst ég þrátt fyrir allt ekki við, eftir því, hvernig samkomulagið virðist vera á stjórnarheimilinu, að til þess séu raunverulega sérstaklega mikil líkindi, að slíkt takist. En jafnvel þó að svo yrði, álít ég þetta alltaf leiðinlegt fyrirbæri, að gefa ríkisstj. heimild til að leysa svona mál með brbl. og það meðan þing raunverulega situr.
Þetta vildi ég aðeins láta koma fram, um leið og við afgr. þetta mál, án þess að það sé ætlun mín að tefja framgang þess að nokkru leyti.