17.12.1955
Sameinað þing: 26. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (2136)

124. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vil aðeins leiða athygli að því, að hér er ekki um neitt nýtt fyrirbæri að ræða. Þinginu í fyrra var frestað með sama hætti. — Ég skal ekki á þessu stigi málsins segja neitt um, hvort ríkisstj. telur nauðsynlegt eða heppilegt að hagnýta þá heimild til útgáfu brbl., sem í þessu felst. Hún hefur um það engan sérstakan ásetning, og það verður að fara eftir því, sem atvik standa til á hverjum tíma.