29.02.1956
Sameinað þing: 42. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í D-deild Alþingistíðinda. (2147)
167. mál, póstþjónusta
Frsm. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Fyrir fjvn. hafa legið tvær þáltill. um póstmál. Önnur er á þskj. 64 og er flutt af hv. þm. V-Húnv. og hv. þm. Dal. og fjallar um það, að komið verði á vikulegum póstferðum um allar sveitir landsins. Hin till., sem fyrir n. hefur legið, er á þskj. 175 og var flutt af mér og er um póstflutninga með flugvélum til Austurlands. Fjvn. hefur athugað báðar þessar till. og sent þær til umsagnar póst- og símamálastjórninni. Þaðan hafa borizt allýtarlegar upplýsingar um efni beggja þessara till., og þær umsagnir eru birtar sem fskj. með þeirri þáltill., sem fjvn. flytur hér á þskj. 414.
Það var einróma álit n., að það færi bezt á því að afgreiða báðar þessar þáltill. á þann hátt að samþykkja eina till. um aukna póstþjónustu. Í fyrri lið þeirrar þáltill., sem n. stendur hér að, er gert ráð fyrir því að samþ. í öllum meginatriðum ákvæði þau, sem fram komu í þáltill. á þskj. 64, og í seinni lið þessarar þáltill. er gengið til móts við efni till. á þskj. 175, að því leyti sem talið er hentugt að bæta póstsamgöngur með því að flytja póstinn með flugvélum.
Það kemur greinilega fram í umsögn póst- og símamálastjórnarinnar, að hér er um talsverðan kostnaðarauka að ræða. Það er ekki hægt að bæta póstþjónustuna á þann hátt, sem hér er gert ráð fyrir, nema það kosti talsvert miklu meira en verið hefur. Er það álit póststjórnarinnar, að framkvæmd á fyrri lið þessarar till. mundi kosta árlega, eins og kostnaði er nú háttað, allt að 430 þús. kr. til viðbótar við það, sem nú er greitt til slíkra póstflutninga. Aftur á móti liggur ekki eins ljóst fyrir, hve mikill kostnaðarauki yrði að því að flytja meira af póstinum en gert hefur verið með flugvélum. Það er þó augljóst, að þar yrði líka um allverulegan kostnaðarauka að ræða. En öll fjvn. var á þeirri skoðun, að hér væri um svo réttlátar óskir manna að ræða um að fá greitt úr póstmálunum, að ekki yrði staðið gegn því, þó að um nokkurn kostnaðarauka væri að ræða, og því leggur n. til, að báðar þessar þáltill., sem ég hef getið um, verði afgreiddar á þann hátt, að Alþingi samþykki þessa till. n., sem hér er á þskj. 414.