07.03.1956
Sameinað þing: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (2162)

23. mál, nýbýli og bústofnslán

Frsm. (Helgi Jónasson):

Herra forseti. Fjvn. hefur athugað till. á þskj. 23, sem hér er til umr., og sent hana til umsagnar nýbýlastjórn ríkisins, og er bréf landnámsstjóra prentað hér með sem fskj. Nefndin var sammála um að leggja til, að till. yrði samþykkt með þeirri breytingu, að í stað þess að till. gerir ráð fyrir, að tveir nefndarmanna verði tilnefndir af Stéttarsambandi bænda, verði þeir tilnefndir af nýbýlastjórn ríkisins, og leggur til, að till. verði samþykkt með þeirri brtt. einni, eins og segir í nál. á þskj. 420.