07.03.1956
Sameinað þing: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í D-deild Alþingistíðinda. (2171)

41. mál, framleiðslusamvinnufélög

Karl Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil f. h. okkar flm. till., sem hér liggur fyrir, þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu hennar á málinu. Að vísu dróst afgreiðslan nokkuð lengi, en hún er ágæt, þegar hún kemur, og ég leyfi mér að vænta þess, ef hv. alþm. samþykkja till. samkvæmt meðmælum n., að þá taki hæstv. ríkisstj. vel á móti henni og fyrir næsta Alþingi liggi vel undirbúið frv. um framleiðslusamvinnufélög.