07.03.1956
Sameinað þing: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í D-deild Alþingistíðinda. (2185)
78. mál, Alþingistíðindi
Frsm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Í þáltill. á þskj. 85 eru tvö efnisatriði, að Alþingi feli forsetum þingsins að sjá um, að þingtíðindin, bæði þskj. og umr., verði prentuð og gefin út hálfsmánaðarlega um þingtímann og síðan höfð til sölu á bókamarkaði, og hitt atriðið, að daglega verði gerður stuttur útdráttur úr umr. þeim, sem fram fara á Alþingi, til birtingar í þingfréttum ríkisútvarpsins, en auk þess sé þessi útdráttur sendur blöðum, sem þess kynnu að óska.
Fjvn. ræddi um þessa till. og þótti rétt að senda hana til umsagnar forsetum þingsins. Til mála hefði einnig getað komið að senda hana til umsagnar þingfréttaritaranum, sem hefur auðvitað mjög mikla þekkingu á framkvæmdinni og aðstöðunni til þingfréttaflutningsins.
Álit þingforsetanna er, að það sé æskilegt, að Alþingistíðindin, bæði þskj. og umr., verði prentuð og gefin út t. d. hálfsmánaðarlega, a. m. k. um þingtímann. Þó telja þeir þessa framkvæmd á þingfréttaflutningnum vera nokkrum vandkvæðum bundna og þess vegna þurfi að athuga ýmis framkvæmdaratriði, sem málið varði, áður en ráðizt sé í breytinguna og hún ákveðin. Þeir mæla því með því, að athugun fari fram á fyrra atriði till. um framkvæmdarmöguleika, en um síðara atriði till., að gera stuttan fréttaútdrátt úr umr., segja þeir, að það heyri tæpast undir verksvið þingsins og þar að auki sé þess að gæta, að engin starfsskilyrði séu til slíkrar fréttaþjónustu í alþingishúsinu. Þeir mæla því á þessu stigi málsins á móti síðari lið brtt.
Fjvn. féllst í heild á þessi sjónarmið forsetanna og leggur því til, að till. verði samþ. í nokkuð breyttu formi, þ. e. aðallega í samræmi við fyrri efnislið hennar. Till. yrði þá svo, að Alþingi ályktar að fela forsetum þingsins að athuga til næsta þings, hvort tiltækilegt muni að prenta og gefa út Alþingistíðindi á hálfsmánaðarfresti um þingtímann og hafa til sölu á bókamarkaði. Fyrirsögn till. leggur n. til að breytist í samræmi við þetta efni hennar. — Um þetta er fjvn. öll sammála.