22.03.1956
Sameinað þing: 49. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (2336)

39. mál, eyðing refa og minka

Pétur Ottesen:

Með skírskotun til þeirra upplýsinga, sem hv. 1. þm. N-M. (PZ) gaf hér um starf Búnaðarfélags Íslands í þessu máli, og þar sem hann m. a. telur nú, að í þessari till. fellst vantraust á Búnaðarfélag Íslands, þá segi ég að sjálfsögðu nei við þessari till., en þeirri hugsun get ég ekki varizt, að mér þykir afstaða hv. þm. í atkvgr. ekki vera röggsamleg, miðað við forsendur hans.