02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í D-deild Alþingistíðinda. (2557)
61. mál, bygging flugvallar við Húsavíkurkaupstað
Flm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 68 till. um, að Alþ. álykti að fela ríkisstj. að láta hefja flugvallarbyggingu í grennd við Húsavíkurkaupstað næsta vor. Að undanförnu hefur Alþ. ekki ákveðið, hvar unnið skuli að flugvallargerð hverju sinni. Ríkisstj. hefur sennilega ákveðið það og þó máske öllu heldur flugráð og flugmálastjóri í samráði við ríkisstj. eða með samþykki hennar.
Tvær ástæður valda því, að ég óska nú ákvörðunar Alþ. um flugvallargerð í mínu kjördæmi. Önnur er sú, að það hefur dregizt fram úr hófi lengi, að þeir, sem ráðin í þessum málum hafa haft, láti gera flugvöll í grennd við Húsavík. Hin er, að tvær till. um, að Alþ. segi fyrir um framkvæmdir næsta sumar, eru fram komnar. Á ég þar við till. á þskj. 27 um endurbætur og stækkun flugvallar í Vestmannaeyjum, till., sem var afgreidd til síðari umr. hér áðan, og einnig till. á þskj. 57 um flugvallargerð í Norðfirði. Ekki efa ég, að þessar till. séu fram bornar af réttmætum ástæðum, og ekki vil ég fyrir mitt leyti bregða fæti fyrir þær, en þó verð ég að álíta, að till. mín styðjist við enn brýnni nauðsyn og fyrst og fremst eigi næsta sumar að koma upp flugvelli við Húsavík. Í Vestmannaeyjum er flugvöllur, sem notazt hefur verið við, og á Norðfjörð var haldið uppi áætlunarflugi sjóflugvéla, og ætti að vera hægt að gera það, þó að það sé ekki æskileg lausn að vísu til langframa, en í grennd við Húsavík er ekki einu sinni aðstaða fyrir sjúkraflugvél að lenda, þótt líf sjúklings liggi við.
Ég hygg, að nú sé svo komið, að enginn kaupstaður landsins eigi við slíkar flugsamgöngur að búa sem Húsavík eða öllu heldur flugsamgangnaleysi. Þó vil ég þar undanskilja Seyðisfjörð, en þar er aðstaða þannig, að varla verður úr bætt.
Næsti flugvöllur við Húsavík er hjá Akureyri. Milli Húsavíkur og Akureyrar eru 97 km. Sú leið er snjóþung á vetrum. Á þeirri leið er Vaðlaheiði, sem verður ófær bílum strax og nokkuð að ráði snjóar. Oft eru því Húsvíkingar og aðrir Suður-Þingeyingar í austanverðri sýslunni alls engu nær að komast ferða sinna, þótt flugvöllur sé hjá Akureyri.
Hér á margt fólk hlut að máli. Í Húsavík eiga heima þrettán og hálft hundrað manns, og sveitirnar, sem sömu örlögum sæta í þessum efnum og Húsavík, eru sjö og allfjölmennar.
Það skal játað, að ekki var hægt að benda á flugvallarstæði rétt hjá Húsavík sjálfgert eða hagfellt, og þeir, sem fyrir flugmálum stóðu, gerðu ekki heldur ýtarlega athugun í því efni fyrr en fyrir tveimur árum. Alltaf vantaði fé, og ég skil vel, að þegar svo er, þá er það vörn og skjól gegn framkvæmdakröfum, að skilyrði séu erfið og óárennileg og ekki ástæða fyrir þá, sem eiga erfitt með að fullnægja kröfunum, að leggja sig fram um að leita að aðstöðu.
Alþingi hefur varið of litlu fé til þessara mála, og þeir, sem með þau hafa farið, hafa verið í miklum vanda að skipta fénu í stór verkefni og mörg. Þegar ég lít yfir það, sem búið er að gera, sé ég ekki betur en yfirleitt hafi vel tekizt um skiptingu og meðferð fjárins. Þó álít ég, að flugvöllur hefði átt að vera kominn í grennd við Húsavíkurkaupstað, og gæti bent á dæmi um annað, sem frekar hefði átt að bíða, en ég geri það þó ekki, af því að komið er sem komið er, og því verður ekki breytt. Hitt er víst, að ekki má draga lengur en til næsta sumars að hefja flugvallargerð í nágrenni Húsavíkur. Annað væri óforsvaranlegt, þegar litið er á aðstæður allar.
Ég hafði, þegar síðasta Alþ. stóð yfir, fulla ástæðu til að ætla, að þessi flugvallargerð yrði hafin á sumri því, sem nú er nýlega liðið. Byggði ég það á viðræðum, sem ég átti við flugmálastjóra og menn úr flugráði, enn fremur á framkvæmdaáætlun, sem kom fyrir fjvn. En þegar til átti að taka, skorti fé til þessarar framkvæmdar. Um það skal hvorki fárazt né sakazt, en það gefur aukinn rétt til að leggja áherzlu á kröfuna um framkvæmdir næsta vor. Í sumar sem leið var ákveðið flugvallarstæðið. Það er, eins og segir í grg. till., vestan þjóðvegarins í Aðaldalshrauni. Þangað er um 12 km akvegur frá Húsavík. Trúnaðarmenn flugmálastjórnarinnar segja, að þarna sé gott flugvallarstæði að undirstöðu, sennilega ódýrt mjög að gera völlinn og gott til að- og fráflugs. Mælt var fyrir vellinum og tryggt með samningi við landeigendur afsal fyrir landi undir 3000 m langan völl og 300 m breiðan. Var tryggt land fyrir svo stórt vallarsvið, vegna þess að þarna er talið, að hægt sé að gera millilandaflugvöll, undirstaða svo traust, að hún þoli stórar flugvélar, en slíkan öryggisflugvöll er talið að vanti á Norðurlandi og ekki skilyrði til að byggja hann annars staðar en þarna eða þá á Melrakkasléttu, og það þykir síður henta.
Till. mín er að sjálfsögðu miðuð við völl vegna innanlandsflugsins. En það tel ég henni þó til gildisauka og flugvallarmálinu í heild, að þessi flugvöllur Húsavíkur og Suður-Þingeyjarsýslu getur verið áfangi í stærri framkvæmd, sem er nauðsynleg til öryggis millilandaflugi, ekki aðeins fyrir Íslendinga, heldur og aðra, sem hér eiga leið um í lofti.
Ég leyfi mér að vænta þess, að till. þessari verði vel tekið, vísað til síðari umr. og hv. fjvn.