02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í D-deild Alþingistíðinda. (2682)
200. mál, aðstoð við togaraútgerðina
Bergur Sigurbjörnsson:
Herra forseti. Mig langar til að bera fram eina litla spurningu í tilefni af ræðu hæstv. viðskmrh. Hann sagði, að gjaldeyrisástandið hefði nú versnað nokkuð frá því í fyrra, m. a, vegna þess, að verið væri að kaupa og borga talsvert mikið af bátum, bæði frá því í fyrra og eins á þessu ári, og sagði jafnframt, að þegar þessir bátar kæmu til landsins, mundi gjaldeyrisástand landsins batna mjög við það, þjóðin fiskaði vonandi meira, aflaði meiri fisk og flytti meira út.
Nú veit ég, að hæstv. ráðh. veit meira um þessi efni almennt en ég og aðrir, og þess vegna langaði mig til að spyrja hann að því, hvort þetta væri alveg örugg kenning. Við vitum það, að í fyrra hefði mjög lítið af togurum landsins verið gert út, ef við hefðum ekki fengið færeyska sjómenn. Þeir hefðu þess vegna ekki aflað gjaldeyris það ár nema vegna. þess arna. Sömuleiðis hefði eitthvað af bátum, minnir mig líka, stöðvazt í fyrra, ef við hefðum ekki fengið færeyska sjómenn. Til þess þess vegna að við getum gert út alla okkar togara núna eða jafnmarga og í fyrra, jafnmarga báta og í fyrra, en þar að auki nýju bátana, þarf það að vera tryggt, að annaðhvort fleiri Íslendingar fáist til að fara á sjó á næsta ári eða verði lausir frá annarri vinnu til að fara á sjó á næsta ári heldur en var í fyrra eða í ár, eða þá, að það þyrfti að vera tryggt, að við fengjum a. m. k. jafnmarga og helzt fleiri Færeyinga á næsta ári en í fyrra. Og ég vildi þá spyrja hæstv. ráðh. alveg sérstaklega: Er tryggt, að annaðhvort þetta takist, að fleiri Íslendingar verði til ráðstöfunar til sjómennsku á næsta ári heldur en var á þessu ári og í fyrra eða að við fáum jafnmarga eða fleiri Færeyinga?