09.11.1955
Sameinað þing: 11. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 412 í D-deild Alþingistíðinda. (2737)
205. mál, diplómatavegabréf
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Eins og hv. alþm. er án efa kunnugt, eru gefin út þrenns konar vegabréf til handa þeim íslenzku ríkisborgurum, sem óska að ferðast til annarra landa. Er þar fyrst að nefna hin svonefndu almennu vegabréf, sem gefin eru út af lögreglustjórum viðkomandi umdæmis, síðan vegabréf, sem utanrrn. gefur út til handa nánar tilgreindum embættismönnum og að síðustu diplómatísk vegabréf svonefnd, sem utanrrn. gefur út, og gildir um þau sérstök reglugerð, sem prentuð hefur verið í Stjórnartíðindum. Mér er ekki kunnugt um, að reglur þær, sem gilda um hin almennu vegabréf utanrrn., hafi verið gefnar út prentaðar.
Í sambandi við þetta hef ég leyft mér að bera fram fsp. til utanrrh. um, hvaða reglur gilda um útgáfu íslenzkra diplómatavegabréfa. Þessa spurningu ber ekki að skilja þannig, að mér sé ekki kunnugt um, að í Stjórnartíðindunum hafi verið prentuð reglugerð um diplómatísk vegabréf, heldur er fyrirspurnin borin fram til þess að fá úr því skorið, hvort einhverjar reglur hafi verið gefnar út um útgáfu diplómatísku vegabréfanna til viðbótar við þær, sem prentaðar eru í reglugerðinni. Þessi spurning er fram borin af þeirri ástæðu, að ég hef orðið þess var á ferðum mínum erlendis, að þar hafa verið á ferð menn með diplómatísk vegabréf, sem ég hef ekki getað séð að ættu að hafa diplómatísk vegabréf samkvæmt þeirri reglugerð, sem gefin hefur verið út um þessi efni. Þess vegna leikur mér forvitni á að vita, hvort aðrar reglur séu til um þessi efni en þær, sem prentaðar hafa verið. Í sambandi við þetta hef ég bætt við spurningu um, hversu mörg slík bréf hafi verið gefin út árlega s. l. fimm ár og hversu margir menn hafi nú slíkt diplómatiskt vegabréf.