15.02.1956
Sameinað þing: 39. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í D-deild Alþingistíðinda. (2790)

138. mál, framkvæmd launalaga

Bergur Sigurbjörnsson:

Herra forseti. Í tilefni af þessum ummælum hæstv. fjmrh. skal ég taka það fram, að ég mun greina honum frá þessu, þegar mér sjálfum sýnist. Ef hann æskir eftir að fá þessar upplýsingar persónulega sem ráðherra, þá skal hann fá þær, en ég er ekki skyldugur til þess að nafngreina menn hér í þinginu.