16.12.1955
Neðri deild: 38. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (2967)

Þingfrestun og setning þings

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér, og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þdm., að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Jafnframt vil ég leyfa mér að þakka fyrir okkar hönd fyrir gott samstarf, það sem af er þinginu, og óska honum gleðilegra jóla og góðs nýárs og að við megum sjá hann heilan hér aftur, þegar við hittumst. Ég vil biðja hv. þm. að taka undir árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]