05.01.1956
Sameinað þing: 27. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (2974)
Þingfrestun og setning þings
forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Hinn 30. des. 1955 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:
Forseti Íslands gerir kunnugt:
Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi, 75. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 5. jan. 1956, kl. 13.30.
Gert að Bessastöðum, 30. des. 1955.
Ásgeir Ásgeirsson.
Ólafur Thors.
Forsetabréf um, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Samkvæmt þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis.
Ég vil aðeins leyfa mér að óska hæstv. forseta og hv. þingmönnum gleðilegs árs með þakklæti fyrir það liðna.