28.03.1956
Sameinað þing: 54. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (2985)

Þinglausnir

Forseti (JörB):

Ég vil leyfa mér að þakka hv. 2. þm. Reykv. fyrir hans hlýju orð í minn garð og hv. þm. fyrir að taka undir þau.

Forseti Íslands (Ásgeir Ásgeirsson): Ég hef í dag gefið út bréf, er hljóðar svo:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið, að Alþingi, 75. löggjafarþingi, skuli slitið í dag, miðvikudaginn 28. marz 1956. Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gert í Reykjavík, 2. marz 1956.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, er ég hef nú lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi er nú slitið,

Ég vil leyfa mér að biðja þingmenn að minnast ættjarðarinnar.

Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Ólafur Thors, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“

Tók þingheimur undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.