27.01.1956
Neðri deild: 51. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í B-deild Alþingistíðinda. (307)
144. mál, tollafgreiðsla
Gils Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram af hálfu okkar þjóðvarnarmanna í sambandi við þetta frv., að við höfum á það fallizt að verða ekki að okkar leyti meinsmenn þess, að það nái hér skjótlega fram að ganga, en með því tökum við að sjálfsögðu enga afstöðu til þeirra frumvarpa, sem hæstv. ríkisstj. hefur nú boðað. Það munum við vitanlega gera, þegar þau liggja fyrir.