01.02.1956
Sameinað þing: 37. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í B-deild Alþingistíðinda. (467)

1. mál, fjárlög 1956

Forseti (JörB):

Þá er fyrstu umferð umr. lokið, og hefst önnur umferð, og eru hverjum flokki ætlaðar 15 mínútur. Nokkuð hefur verið farið umfram þann tilsetta tíma í fyrstu umferðinni, en þannig er ástatt um það, að litlu skeikar milli flokka, og tel ég helzt á því fara, að þeim litla mismun, sem fram yfir er, verði sleppt. En ég vil biðja hv. alþm. í ræðum sínum hér eftir að binda sig sem mest við þann tíma, er fyrir fram er tiltekinn.