08.11.1955
Neðri deild: 16. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (484)

17. mál, tilkynningar aðsetursskipta

Frsm. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Frv. þetta um tilkynningar aðsetursskipta er til staðfestingar á brbl. frá 25. ágúst þ. á. Nefndin hefur athugað frv. og hefur ekkert við það að athuga og leggur því til, að það verði samþykkt óbreytt.