30.01.1956
Efri deild: 55. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (567)

103. mál, sauðfjársjúkdómar

Forseti (GíslJ):

Mér þykir sjálfsagt að verða við þeirri ósk frá hv. þm. Str. að fresta málinu. Ég er sammála honum um, að það sé ekki rétt að samþykkja skrifl. brtt. um viðurlög, nema hv. þm. hafi gefizt tækifæri til þess að athuga hana, og þar sem henni hefur ekki verið útbýtt í deildinni, mun ég fresta umræðunni.