13.10.1955
Efri deild: 4. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (58)
13. mál, innheimta ýmis gjöld 1956 með viðauka
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Á undanförnum árum hafa nokkur gjöld til ríkisins verið innheimt með viðaukum. Þetta eru aðallega gjöld, sem eru tiltekin miðað við magn, og hefur því með breyttu verðlagi verið talið eðlilegt að leggja á þau viðauka. Sömu ástæður og áður eru fyrir hendi að því leyti til, að það er full þörf á því að innheimta þessa gjaldaviðauka, og því er þetta frv. fram borið. Ég vil leyfa mér að óska eftir því, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.