28.02.1956
Efri deild: 77. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í B-deild Alþingistíðinda. (607)
159. mál, skattfrelsi Nóbelsverðlauna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Eins og hv. þdm. er kunnugt, hefur Halldór Kiljan Laxness fengið Nóbelsverðlaunin, rithöfundarverðlaunin. Ríkisstj. hefur athugað þetta mál og komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé óeðlilegt, að slík verðlaun sem Nóbelsverðlaunin sæti sömu meðferð og tekjur almennt í sambandi við skatta- og útsvarsálagningu. Leggur hún því fram þetta frv. um að undanþiggja verðlaunin bæði tekjuskatti og útsvari.
Mér finnst, að það ætti ekki að vera nauðsynlegt að vísa þessu máli til nefndar. Það gekk nefndalaust í gegnum Nd. Menn féllust á að hafa það svo til þess að sýna, að þeir vildu ekki gera þetta að neinu álitamáli.