14.12.1955
Neðri deild: 32. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

15. mál, tollskrá o. fl.

Frsm. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá Ed. og er ekki annað en staðfesting á þeirri löggjöf, sem nú gildir í þessu efni og hefur verið framlengd hér á fyrri þingum. Fjhn. mælir með samþykkt þess, nema hvað tveir þm. hafa fyrirvara um andstöðu gegn B-lið 1. gr., eins og fram kemur í nál. á þskj. 191, en þeir eru báðir andvígir því ákvæði, sem þar er um álag á verðtollinn, en það er minni hluti nefndarinnar, hv. 9. landsk. og 1. landsk. Að öðru leyti leggur n. til, að frv. verði samþykkt.