26.03.1956
Efri deild: 96. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

3. mál, íþróttalög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur legið alllengi fyrir hv. Nd., og geri ég ráð fyrir, að hv. alþm. hafi kynnt sér það. Það var undirbúið af mþn. Menntmrn. gerði á því nokkrar ekki þýðingarmiklar breytingar, og síðan hefur það í höfuðatriðum verið samþ. í Nd. með nokkrum minni háttar breytingum.

Þó að alláliðið sé þings, vonast ég til, að þm. hafi kynnt sér svo þetta mál, að það geti fengið hér greiða afgreiðslu. Legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.