08.03.1957
Neðri deild: 64. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1039)

99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.

Ólafur Thors:

Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram, að hv. frsm. minni hl. er hér ekki staddur, vegna þess að hann varð að fara á áriðandi fund ásamt með 2 öðrum þdm., en með því að ég geri ráð fyrir, að það hafi engin áhrif á atkvgr., þá óska ég ekki eftir, að henni verði frestað. Ég vildi aðeins, að þetta væri skjalfest.