02.04.1957
Efri deild: 81. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í B-deild Alþingistíðinda. (1094)
10. mál, dýravernd
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Síðan þessari umr. var frestað s.l. föstudag, hefur menntmn. haldið fund og orðið á einu máli um að flytja brtt. við 16. gr. frv. Efni þeirrar brtt. er að taka upp það ákvæði, sem var í frv. upphaflega, þ. e. í 17. gr., að sérstök dýraverndarnefnd skuli vera menntmrn. til aðstoðar. Skuli hún þannig skipuð, eins og greinir í brtt. á þskj. 395, og starfa kauplaust. Nefndin á að vera skipuð eins og upphaflega var lagt til í stjórnarfrv., að öðru leyti en því, að tekin er inn tilnefning eins manns af hálfu Búnaðarfélags Íslands, þannig að menntmrh. skipi n. til fjögurra ára, skuli einn nm. skipaður eftir till. Búnaðarfélags Íslands, einn eftir till. Dýraverndunarfélags Íslands, einn eftir till. Hins ísl. náttúrufræðifélags, einn eftir till. Dýralæknafélags Íslands, menntmrh. skipar einn nm. án tilnefningar, en nefndin kjósi sér sjálf formann.
Þetta mál var rætt nokkuð hér við fyrri hluta þessarar umr., og sé ég ekki ástæðu til að bæta þar neinn við, en menntmn. leggur til, að þessi till. á þskj. 395 sé samþykkt.
Nefndin hefur einnig rætt um brtt. frá hv. 1. þm. N-M. á þskj. 372 og telur ekki ástæðu til að mæla með samþykkt þeirra.