26.03.1957
Efri deild: 77. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1153 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)

133. mál, vísitala byggingarkostnaðar

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Ég vildi aðeins taka það fram út af ummælum hv. þm. N-M. (PZ), að ég tel það alveg sjálfsagt, að það verði rætt við höfunda frv. um möguleika á því atriði, er hann nefndi, þó að ég efist eftir minn yfirlestur á frv. um, að það sé mögulegt nema með gerbyltingu á frv., á grunni þess. En ég vil aðeins, að það komi hér fram þegar við umr., að ég mun koma því á framfæri við form. n., að hann athugi um þetta við höfunda frv.