02.05.1957
Neðri deild: 90. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)
206. mál, skattfrádráttur
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það ber vissulega að fagna því, að það hefur þó tekizt nokkuð að breyta þessu frv., frá því að það var lagt hér upphaflega fram, og sérstaklega þeirri breytingu, sem hæstv. fjmrh. gat hér nm áðan, að það er ekki gert upp á milli manna á skipunum um þessi hlunnindi. Það er vissulega til bóta, að þeirri breytingu skuli hafa fengizt framgengt. Það hefur hins vegar verið mjög á það bent, bæði í þessari hv. deild og Ed., að hlunnindi þessi, sem hér er um að ræða í sambandi við skattfrádráttinn, væru lítil, og mjög dregið í efa, að þau gætu haft nokkur áhrif í þá átt að örva menn til starfa í þessari atvinnugrein. En það er auðvitað höfuðtilgangurinn með frv. þessu að stuðla að því, að fleiri menn fáist til starfa á fiskiskipunum og að ekki þurfi, sem nú standa sakir, að leita til útlanda um að fá skipverja til að vinna að þessari undirstöðuframleiðslu í þjóðfélaginu.
Bæði hér í Nd. og einnig í hv. Ed. hafa verið fluttar brtt. í þá átt að reyna að fá fram hækkun á þeim skattahlunnindum, sem frv. gerir ráð fyrir, þannig að það geti komið að því gagni, sem tilgangurinn hlýtur að vera með frv. Því miður hafa ekki fengizt á þessu, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, neinar lagfæringar. En ég vil nú við þetta síðasta tækifæri reyna að gera enn eina tilraun til að fá fram breytingu á þessu ákvæði og vil því leyfa mér að bera hér fram í þessari hv. d. brtt., sem er samhljóða brtt., er flutt var við frv. í hv. Ed., en till. er svo hljóðandi, — ég verð að flytja hana skriflega og biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni, — brtt. er við 2. gr. frv., að greinin orðist svo:
„Öllum skipverjum, sem verið hafa lögskráðir á íslenzk fiskiskip fjóra mánuði eða lengur á viðkomandi skattári, skal við ákvörðun tekjuskatts veittur sérstakur frádráttur, er nemi 30% af tekjum fyrir störf á fiskiskipum.“
Ég tel ekki þörf á því að vera að orðlengja um þessa till. Hún skýrir sig sjálf. Ég tel hins vegar rétt, að þessi hv. d. fái að segja um þetta sitt álit, áður en málið er endanlega afgreitt.