02.05.1957
Neðri deild: 90. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

206. mál, skattfrádráttur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég sé ekki ástæðu til að fara að endurtaka hér þær umræður, sem hafa orðið áður um þetta mál í deildinni. Hv. 2. þm. Eyf. flytur brtt. um að gera frjálsan miklu stærri hluta af tekjum sjómanna en gert er ráð fyrir í frv. Ég vil aðeins segja, að ríkisstj. hefur lagt fyrir þessar till. að athuguðu máli og ekki séð sér fært að ganga lengra, og mæli ég því gegn þessari brtt.