09.04.1957
Neðri deild: 83. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1196 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)

109. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. minni hl. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Í nál. því, sem nú hefur verið útbýtt af hálfu minni hl. allshn., gerir minni hl. grein fyrir skoðunum sínum á þessu máli, og hef ég að svo stöddu engu þar við að bæta. Ég tel því ekki ástæðu til að tefja umræðurnar eða lengja þetta athafnasama þing, sem mér skilst að aðallega starfi utan þingfunda, og vil ég ekki trufla þau störf og læt þvímáli mínu lokið að svo stöddu.