05.04.1957
Efri deild: 83. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (1228)

58. mál, iðnfræðsla

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hv. iðnn. fyrir afgreiðslu hennar á málinu og láta í ljós þá mjög eindregnu ósk til hv. deildar, að málinu verði hraðað í gegnum deildina, þannig að takist að ljúka því á þessu þingi.