04.04.1957
Efri deild: 82. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1204 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)

150. mál, samþykkt á ríkisreikningum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. til laga um samþykkt á landsreikningnum er samið í sama formi og verið hefur. Sé ég ekki ástæðu til þess að fylgja því úr hlaði með framsögu, en óska, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.