22.05.1957
Neðri deild: 103. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (1371)

147. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að ég sé ekki neina ástæðu til þess að greiða atkv. nm einstakar gr. þessa frv., sem ég er alveg á móti, og mun sýna það við lok atkvgr., að ég er frv. öllu saman í heild sinni andvígur.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 18:1 atkv.