27.05.1957
Efri deild: 110. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (1570)

177. mál, Landsbanki Íslands

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Það var farið fram á það af ríkisstj. í upphafi, að nefndirnar hefðu frá upphafi sömu aðstöðu í báðum d. til þess að rannsaka og fylgjast með málinu og héldu um það sameiginlega fundi. Fjhn. Ed. hefur því haft nákvæmlega sömu aðstöðu til að rannsaka málið og gera brtt. eins og n. í hv. Nd., þar sem þær hafa unnið að málinu sameiginlega. Þess vegna sé ég enga ástæðu til þess að vísa málinu aftur til n. og segi nei.