27.05.1957
Efri deild: 110. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1599)

178. mál, Útvegsbanki Íslands

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að vísa til framsöguræðu minnar um frv. um Landsbanka Íslands og óska eftir, að málinu verði vísað til 2. umr. Í því sambandi gildir það sama og með landsbankafrv. Það átti að vinna að því í n. sameiginlega, og ég sneri mér til formanna n. og bað þá að sjá um, að það yrði gert. Ég óska þess vegna eftir, að málinu verði vísað til 2. umr. án nefnda, þar sem það er búið að vera í nefnd hér í deildinni.