07.02.1957
Sameinað þing: 26. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (171)

Varamenn taka þingsæti

Forseti (EmJ):

Frá minni hluta kjörbréfanefndar liggur fyrir till., sem er svo hljóðandi:

„Sameinað Alþingi samþykkir að taka Eggert Þorsteinsson gildan sem réttkjörinn varamann af lista Alþýðuflokksins í Reykjavík.“

Það er óskað nafnakalls um till., og verður það viðhaft.