24.05.1957
Efri deild: 109. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1824 í B-deild Alþingistíðinda. (1747)

175. mál, vísindasjóður

Jón Kjartansson:

Herra forseti. Ég fagna því, að hæstv. ráðh. og menntmn. hafa komizt að raun um við nánari athugun, að stjórn hugvísindadeildar, eins og ætlað var í frv., fær vart staðizt, og ég get fyrir mitt leyti fallizt á, að brtt. hæstv. ráðh. sé til bóta, og mun greiða henni atkv., og þar með tökum við till. á þskj. 612 aftur.