29.05.1957
Neðri deild: 113. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1832 í B-deild Alþingistíðinda. (1758)

175. mál, vísindasjóður

Frsm. minni hl. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Við, sem skipum minni hl. menntmn. þessarar deildar, munum flytja nokkrar skrifl. brtt. við þetta frv., eins og boðað var í umr. um þetta mál í gær. Þær eru í samræmi við efni frv., sem prentað er sem fylgiskjal á þskj. 669. Að öðru leyti hygg ég óþarft að tefja hér fundartíma með því að gera nánari grein fyrir þeim till. en gert var í gær og mun því ekki láta þessi orð verða fleiri.