29.05.1957
Neðri deild: 116. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)

116. mál, félagsheimili

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég er eindregið á móti þeirri stefnu að áskilja, að tekjur af sölu einkasöluvara renni annað en í ríkissjóð, tel eðlilegast, að þær renni þangað og sé þaðan úthlutað aftur, og greiði því atkv. á móti þessari till. og segi nei.

Brtt. 695 samþ. með 17:2 atkv.

2. gr., svo breytt, samþ. með 19 shlj. atkv.

3. gr. samþ. með 21 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 18 shlj. atkv.